Laufey Jakobsdóttir eða amman í Grjótaþorpinu
Í húsinu sem stendur við Grjótagötu 12 bjó Laufey Jakobsdóttir, eða „amman í Grjótaþorpinu" á árunum 1976 til 1995. Laufey fæddist á Bóndastöðum í Borgarfirði eystri þann 25. september 1915. Eiginmaður Laufeyjar var Magnús B. Finnbogason húsa-smíðameistari, rithöfundur og hugvitsmaður, fæddur 21. júlí 1911, dáinn 2. febrúar árið 1993. Eignuðust þau átta börn og eru afkomendur þeirra fjölmargir. Laufey lét mikið til sín taka í félagsmálum, hún var einn af stofnendum Kvennalistans og bar hag og réttindi kvenna fyrir brjósti i öllu sem hún tók sér fyrir hendur. Hún var heiðursfélagi í Dýraverndunarfélagi Íslands, sinnti málefnum aldraðra, var áhugasöm um friðun gamalla húsa og virk í Torfusamtökunum um tíma. Laufey skrifaði margar greinar í dagblöð og tímarit og einnig liggur eftir hana fjöldi ljóða. Bókin Lífsbók Laufeyjar, samtalsbók um ævi hennar, kom út 1992. Laufey barðist ávallt fyrir rétti lítilmagnans og er hún þekkt fyrir störf sín í þágu unglinganna í miðborg Reykjavíkur og þekktu hana margir sem „ömmuna í Grjótaþorpinu" vegna þess. Hún sá m.a. til þess að almenningsklósett væri opnað í Grjótaþorpinu og vann þar kauplaust langt fram á nætur, til þess að unglingarnir á Hallærisplaninu hefðu í öruggt skjól að venda. Hún var sæmd riddarakrossi
Hinnar islensku fálkaorðu 17. júní 1996. Laufey lést þann 6. mars 2004.
Laufey Jakobsdóttir, "the grandmother of Grjótaþorp (Grjóti Village)"
Grjótagata 12 was the home of Laufey Jakobsdóttir, nicknamed "the grandmother of Grjótalþorp," from 1976 to 1995. Laufey was born on 25 September 1915 in Borgarfjörður, east Iceland. Her husband was Magnús B. Finnbogason (1911-93), a master builder, writer and inventor. They had eight children and many descendants. Laufey was passionate about social issues: she was one of the found-ers of the feminist Women's Alliance, and placed priority on women's rights in all that she did. She was an honorary member of the animal protection association, an advocate for elderly care, and was interested in the preservation of historic buildings, an active member of the architectural conservation group Torfusamtökin. Laufey wrote many newspaper and magazine articles, as well as a large number of poems. A book based on interviews with her, Lífsbók Laufeyjar (The Book of Laufey's Life), was published in 1992. Laufey always fought for the rights of the disempowered, and she is renowned for her work with young people in the city centre, for which she became known as "the grandmother of Grjótaþorp." Among her achievements was the opening of a public toilet in Grjótaþorp, where she worked long hours into
the nights, unpaid, so that the youngsters would have a safe haven. On 17 June 1996 she was awarded the Knight's Cross of the Icelandic Order of the Falcon. Laufey passed away 6 March 2004.
Comments 0 comments